Vekra er eigandi eða meirihlutaeigandi að fyrirtækjum sem sérhæfa sig í sölu og þjónustu bifreiða, útleigu þeirra ásamt þjónustu til einstaklinga og fyrirtækja. Starfsemi Vekru felst í umsjón fjárfestinga og stoðþjónustu við rekstrarfélög sín, sem hvert um sig er öflugur þátttakandi á sínum markaði.